Á síðasta aðalfundi gaf Berglind Ágústsdóttir ekki kost á sér til áframhaldandi starfa í stjórninni. Því var gengið til kosninga og var Bára Sævaldsdóttir kosin í hennar stað. Rætt var um hvort áhugi væri á að reyna halda sameiginlega ræktunarsýningu uppsveitanna. Eins kom fram að laga þyrfti heimasíðu félagsins. Viðurkenningu fyrir hæstdæmda stóðhest og hæstdæmdu hryssuna hlaut Berglind Ágústsdóttir fyrir þau Vála og Draumsýn. Ræktunarbú ársins var Jaðar.
Á liðnu starfsári fundaði stjórnin nokkuð reglulega og skipti með sér verkum eins og hentaði hverju sinni svo sem að bera á tittahólf, yfirfara og laga girðingar auk þess að hafa eftirlit með graðhestahófli. Erfiðlega gekk að koma heimasíðunni í lag, en það virðist nú hafa tekist og vonast stjórnin til að hún fari að virka eins og lagt var upp með í upphafi.
Í Högnastaðagirðingunni voru 21 tittur og fóru flestir upp í Hrunahólf á haustmánuðum auk þess sem aðrir bættust við í haustgönguna.
Stóðhesturinn Toppur frá Auðholtshjáleigu var á vegum félagsins eftir landsmót. Hann fékk til sín 32 hryssur og fyljuðust 28 af þeim. Innansveitahryssur voru 14 og var staðfest fyl í 12 af þeim.
Árleg folaldasýning félagsins fór fram í Reiðhöllinni sunnudaginn 9.nóvember og var Hallgrímur Birkisson fenginn til að dæma folöldin. Þátttaka var með ágætum og mættu 21 folald til leiks sem skiptist í 11 hryssur og 10 hestfolöld.
Áhorfendur kusu glæsilegasta folaldið og var það Hetja frá Haukholtum sem hlaut þá viðurkenningu.
Hestfolöld:
1.Vestri frá Túnsbergi, brúnn.
F: Loki frá Selfossi
M:Viska frá Túnsbergi
Ræktandi og eigandi Bragi Viðar Gunnarsson.
2. Glampi frá Miðfelli 5, brúnskjóttur
F: Lukku- Láki frá Stóra-Vatnsskarði
M: Hrafntinna frá Miðfelli 5
Ræktandi og eigandi Magnús Gunnlaugsson
3. Draupnir frá Unnarholtskoti, rauðtvístjörnóttur
F: Amper frá Kílhrauni
M: Dögg frá Ásólfsstöðum
Ræktandi og eigandi Kristín Erla Ingimarsdóttir
Hryssur:
1.Una frá Hrepphólum, brún
F: Bikar frá Syðri- Reykjum
M: Gyðja frá Hrepphólum
Ræktandi og eigandi Hulda Hrönn Stefánsdóttir
2.Hetja frá Haukholtum, rauðblesótt
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Elding frá Haukholtum
Ræktandi: Magnús Helgi Loftsson, eigandi: Alina Elena Balusanu
3.Hátíð frá Skollagróf, bleikálótt F: Rammi frá Búlandi M: Virðing frá Skollagróf. Ræktendur og eigendur Sigurður Haukur Jónsson og Helgi Valdimar Sigurðsson.
Vísindaferðin var farin laugardaginn 18.apríl og tóku um 20 manns þátt í henni. Að þessu sinni var farið á þrjá staði hér í nágrenningu. Byrjað var á Þóroddsstöðum, þaðan haldið í Hrosshaga og endað á Kjóastöðum. Hópurinn fékk höfðinglegar móttökur á þessum stöðum og fengu að sjá spennandi hross. Þegar heim var komið fóru flestir á Kaffi-Grund og borðuðu þar saman.