Skýrsla stjórnar 2012
Aðalfundur HRFH 2012 var haldinn 25 mars í Reiðhöllinni á Flúðum. 20.manns mættu.
Grímur Guðmundsson formaður setti fundinn.Berglind Ágústsdóttir ritari las upp fundagerð síðasta árs og Sigurður Haukur Jónsson lagði fram reikninga ársins, sem voru samþykktir.
Í kosningu var aðalstjórn kosinn aftur og varastjórn líka.
11.febrúar Afmælissýning HRFH
Sett var upp Ljósmyndasýning í félagsheimilinu á Flúðum af hrossum í Hrunamannahrepp.
Hrossaræktarfélag Hrunamanna minntist þess að síðla í janúar ári 1912 komu 30 bændur saman og stofnuðu Hrossaræktarfélag. Afmælisins var minnst með málþingi yfir miðjan daginn og fluttu þeir Dr. Ágúst Sigurðsson skólastjóri og Gunnar Arnarson hrossaræktandi í Auðsholtshjáleigu fróðleg erindi um stöðu íslenska hestsins fyrr og nú. ræktunarstefnu, markmið, þeirra eigin reynslu og fl.
Um kvöldið var svo haldin vegleg afmælishátíð með glæsilegum kvöldverði að hætti Hótels Flúða, boðið var upp á fordrykk í boði Líflands og frábær skemmtiatriði i höndum þeirra, Davíðs og Stefáns en þeir nutu aðstoðar undirleikarans Helga sem fór líka á kostum. Afmælisnefndina skipuðu, Magga Brynjólfsdóttir, Einar Logi Sigurgeirsson og Páll Jóhannsson.
Á Aðalfundi HRFH voru veitt verðlaun fyrir gott ræktunarstarf félagsmanna og í tilefni 100 ára afmælis félagsins höfðu verið keyptir tveir eignabikarar( fyrir hest og hryssu ) sem gefnir eru þeim félagsmanni sem ræktað hefur hæðst dæmda hrossið en er ekki í eigu hans. Af sama tilefni gaf Sveitarstjórn Hrunamannahrepps félaginu 2 nýja bikara, fyrir hæst dæmda stóðhestinn og hæst dæmdu hryssuna í eigu félagsmanns. Efstur stóð stóðhesturinn Hljómur frá Túnsbergi (A: 8.17), eigendur og ræktendur Gunnar K Eiríksson og Magga Brynjólfsdóttir Auka bikar fengu þau Haraldur og Jóhanna á Hrafnkelsstöðum fyrir Straum frá Hrafnkelsstöðum (A: 8.18) en Straumur, sem ræktaður er af þeim, fékk hærri einkunn en er ekki lengur í eigu þeirra.
Hæst dæmda hryssan var Íris frá Efra-Langholti (A:8.15), eigendur og ræktendur Berglind Ágústsdóttir og Ragnar Geirsson. Auka bikar fékk Sigmundur í Syðra-Langholti fyrir Kráku frá Syðra-Langholti (A: 8,21), en Kráka er ræktuð af Sigmundi en er ekki lengur í hans eigu.
Veitt voru verðlaun fyrir ræktunarbú ársins, þau komu í hlut þeirra hjóna Kristbjargar og Agnars á Jaðri. Verðlaunagripurinn er mjög falleg stytta sem hrossaræktarfélag Tungnamanna gaf HRFH á afmælinu.
Stigafjöldi ræktunarbúa.
1.Jaðar 163.stig
2.Hrafnkelsstaðir 151.stig
3.Efra-Langholt 68.stig
Stóðhestar sumarið 2012
Álmur frá Skjálg undan Trúr frá Kjartansstöðum og Vár frá Skjálg var á fyrra gangmáli
Verð: 45.000+VSK+girðingargjald+sónar
Fjöldi hryssna voru alls 21 þar af 16 frá félagsmönnum, sónað fyl í 16 þar af 13 frá félagsmönnum til viðbótar var ein hryssa frá félagsmanni ekki sónuð en er talin fylfull, 4 voru því tómar.
Fyljunarprósenta er því 81 %.
Álmur kom 16.júní og fór 19. Júlí.
Arion frá Eystra-Fróðholti F: Sær frá Bakkakoti M: Gletta frá Bakkakoti var á seinna gangmáli
Verð: 120.000 +VSK+girðingargjald+sónar
Hryssur hjá Arion voru alls 43 þar af 12 frá félagsmönnum, sónað fyl í 34 en 9 vorur tómar, frá félagsmönnum voru 12 hryssur og af þeim 10 með fyli.
Fyljunarprósentan er því 79,1 % og af þessum 9 tómu voru 5 með einhverskonar frjósemis vandamál.
Arion kom 23. júlí og fór 24. september.
Tittagirðing
Alls komu 16 folar í girðinguna en þeir voru ekki allir allan tímann, fyrstu folarnir komu 20. júní og síðan voru þeir teknir úr girðingunni 28. september. Ætterni og útlit folana, svo sem litir var mjög fjölbreytilegt.
Rútuferð
30.mars fóru ríflega 20 manns í hina árlegu rútuferð félagsins og var byrjað á að fara í Þorleifskot til Sigursteinns og Árna og skoðum ný innréttað hesthús og hross m.a. Álm frá Skjálg og Ölfu frá Blesastöðum.
Næst fórum við að Ölvisholti og skoðuðum úti “hesthús” og fóðrunar aðstöðu þar bæ. Aðalsteinn Seinþórsson sýndi okkur hesta og aðstöðu og útskýrði fyrir okkur hvernig allt virkaði.
Síðan fórum við til Hólmfríðar og Magnúsar á Blesastöðum og sáum hest þjáfaðan á vatnsbretti og marga eigulega gripi úr þeirra ræktun og lagði Magnús á Fláka fyrir okkur sýndi hann góð tilþrif á öllum gangi.
Að lokum var farið á Kaffi Grund þar sem flestir snæddu saman kvöldverð.
Ræktunarsýning HRFH
Vegleg og skemmtileg ræktunarsýning var haldinn sunnudaginn 15.apríl í Reiðhöllinni á Flúðum. Sýninginn var vel sótt. Fram komu hross frá 13 ræktendum ungfolar, hryssur, geldingar og stóðhestar.
Álmur var kynntur og Skjön, systir Álms var sýnd í reið, til stóð að sýna Álm en hann forfallaðist.
Eftirfarandi bæir tóku þátt í sýningunni: Jaðar, Núpstún, Túnsberg, Miðfell 5, Syðra-Langholt, Hrafnkelsstaðir 1, Efra-Langholt, Galtafell, Ásatún, Langholtskot og Haukholt.
Á sýningunni var fornlega opnuð ný heimasíða félagsins slóðinn er hrosshrun.weebly.com
Folaldasýning
Folaldasýninginn var haldin 03.nóvember 2012 í Reiðhöllinni Flúðum
16 folöld voru skráð til leiks. Dómarar voru Bergur Jónsson og Daníel Jónsson og fóru þeir á kostum.
Flokkur hestfolalda
1.sæti Appaló frá Haukholtum (brúnn) F: Arion frá Eystra-Fróðholti M: Elding frá Haukholtum. Rækt/eig: Magnús H Loftsson
2.sæti Verðandi frá Efra-Langholti (rauðstjörnóttur) F: Krákur frá Blesastöðum M: Venus frá Reykjavík.
Rækt/eig: Berglind & Ragnar
3.sæti Eldur frá Ásatúni (Ljósrauður) F: Gammur frá Þúfu M: Æsa frá Ásatúni.
Rækt/eig: Grímur Guðmundsson
Flokkur merfolalda
1.sæti Aþena frá Haukholtum F: Kiljan frá Jaðri M: Birta frá Smyrlabjörgum.
Rækt/eig: Alina Elena Balusanu
2.sæti Nútíð frá Skollagróf F: Víðir frá Prestbakka M: Virðing frá Skollagróf.
Rækt/eig: Sigurður H. Jónsson & Helgi V. Sigurðsson
3.sæti Hátíð frá Reykjaflöt F: Spuni frá Vesturkoti M: Hrund frá Reykjaflöt.
Rækt/eig: Guðrún Th Guðmundsdóttir & Lúðvík Kaaber
Önnur mál
Eftirlitsgjald var sett á fyrir útlögðum kostnaði á eftirlit stóðhesta á vegum HRFH.
Kr 2500.
Óli í Hrepphólum vill fá fast verð hvað folatollarnir kosta með öllu.
Álmur: 64.005 kr og Arion 158.130kr
Rætt var um skráningu á Rækrunnarsýningunna hvernig besta formið væri á því.
Auglýsa skráningar formið
Magnús frá Haukholtum vill vita hvað er búið að panta stóra rútu fyrir skoðunarferðina.
Jóhanna á Hrafnkelsstöðum spyr um fjölda hrossa sem má koma með á Ræktunarsýningunna. Svarið var að sýningin er takmörkuð af tíma(5-10 mín)
Félagsmenn vilja ekki borga fyrir að koma með hross. Þulur þarf að vera vel undirbúinn.
Magga í Túnsbergi stakk upp á að gaman væri ef að afkvæmi Hrynjandi frá Hrepphólum gæti komið.
Gunnari á Túnsbergi finnst að það eigi ekki að rukka meira fyrir rútuferð en hún kostar, þarf ekki að vera hagnaður, frekar að láta félagsmenn njóta þess í lægri gjöldum.
Magga í Túnsbergi auglýsir eftir efni á heimasíðunna.